Færsluflokkur: Bloggar
já loksins er sumarið farið að gefa okkur smá sól hingað á klakann....
í gær fórum við Helgi mamma pabbi Elísabet og Tanja vinkona elísubetar í heiðmörk og grilluðum.. ohhh það var æðislegt.. það er svo fallegt þarna þegar það er svona gott veður...
síðan í dag..úff það er bara hátið...2 sólardagar og logn báðadagana og það í röð... það er bara draumur...it's to good to be true....
en jámm... í gær eftir vinnu fór mamma og pabbi með mig í ólavía og óliver og við keyptum æðislegann barnavagn og svona smá fylgihluti við hann...þetta er svona "baby's first car" kerruvagn.. æðislegur... hann er svo mjúku og léttur og alls ekki klunnalegur.. bara frábær vagn í alla staði....
æj já það er svo stutt í þetta....ekki einusinni 6 vikur í áætlaðann fæðingardag.... enda er farið að vera meira um verki og þreytu sem er nú alveg skiljanlegt...
ég er orðin svo hryllilega spennt að það er eiginlega bara óholt...skil ekki hvernig konur geta meðið eftir börnunum sínum svona lengi.... en jújú þetta er hlutur sem fylgir þessu bara...
æj já það er allt svo fljótt að líða einhvað....Verslunarmannahrlgin bara rétt ókomin.. tengdó og famelí fara að koma heim frá spáni,María kærasta Óla frænda er búin að vera að vinna á kanarí í sumar..hún fer að koma heim, ég fer í fæðingarorlof á föstudaginn í næstu viku ég fer að fara að eiga barnið..þúst...jólin ....að styttist óðum í þau..þetta er allt svo allt of fljótt að líða.. mér finnst eins og allt sé á hraðspólun eikkurneigin..en samt finnst mér þetta aldrei ætla að koma... áður en maður veit af er verið að leita af elliheimili handa manni... það er tímabært að maður fari að nota þennan tíma sem maður hefur í dag því maður veit ekki hvernig morgundagurinn verður... hvað þá vikan eða mánuðurinn....
en já...eg ætla að hætta að spá í þessu.. maður getur svo endalaust talið upp og blaðrað um það daginn út og inn en ég nenni þvi nú ekki... ég sit hérna einhvað ein heima hjá tengdó að láta mér leiðast inni í þessu góða veðri..held að ég sé ienhvað klikkuð.. í staðinn fyrir að fara út á svalir a.m.k. í góða veðrið... en svona er þetta bara.. jæja..ég ætla að halda áfram að gera mig sæta og fína og dunda mér einhvað hérna heima ..aldrei að vita að maður fái múttu og þau til að gera ienhvað svona í tilefni veðursins.....
hafið það gott og notið sólina vel... hún fer áður en mann grunar
Bloggar | 2.8.2006 | 13:06 (breytt 24.9.2006 kl. 01:24) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
æji já ég er búin að vera ýkt löt vi það að skrifa og blogga en já betra er seint en aldrei....
nú er tengdó og famelí farin til benidorm..þannig að við helgi búum bara heima hjá þem á meðan..mér finnst þetta svo mikið svindl... allir að fara til útlanda í kring um mann bara því ég get ekki farið....en sonna eridda...ég verð bara hér heima í okkar æðislegu rigningu og þessum æðislega vindi.....horfa á björtu hliðarnar.. blómin þurfa nottla á þessu að halda til þess að lifa og fjölgasér með fræflutningunum... en jámm....
annars er ég nú bara orðin óþolinmóð í því að bíða eftir dóttur minni...hún er nú farin að róast alveg helling hérna í maganum en það er bara út af plássleysi held ég...
en jámm....síðan fer ég að far aí fæðingarorlof...á svo stutt eftir í vinnu að það er varla hægt að trúa þessu..ég er enn svona að jafna mig á þessu...þetta er allt svo fljótt a líða að maður á í erfiðleikum með að halda í við timann....
en jámm..ég ætla að finna mér einhvað að gera svona í tilefni að því að vera eins heima :)
hafið það gaman um versló á djamminu............
og hafið mig í huga....auka fyrir mig :**
kv frá bumbubúa og mér
Bloggar | 28.7.2006 | 17:26 (breytt 24.9.2006 kl. 01:24) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
ohhh loksins eru mamma og þau komin heim.. var farin að sakna þeirra of mikið..... og eins og mamma er (klaupóð) þá kom hún heim með stóra ferðatösku handa okkur Helga og litlu prinsessunni sem hún var að kaupa úti.....bilun...en jámm... þannig að kommoðan er eiginlega bara að verða troðin :S
Og æj að var svo margt sem var svo hrikalega sætt..ég bara átti erfitt með mig...og þetta var svo mikið að fötum á hana að ég held að ég geti bara gjörsamlega sleppt öllum fatakaupum...
Síðan fóru þau á einhvern götumarkaðinn og sáu að það var verið að sauma í derhúfur og allskonar hluti og létur gera 2 bleika smekki...ýkt sæta sem stóð á afastelpa á einum og ömmustelpa á hinum.. ekkert smá sætt... svo fékk hún alveg flóð af böngsum og útigalla,baðslopp,handklæði, teppi,2 eða 3 kjóla, húfur,sólhatta,sandala,2galla,samfellur og meira að segja sundkúta og síðan var einhvað meira líka, man því miður ekki hvað..enda soldið mikið af dóti...
Þetta er ýkt sætur kjóll sem var keyptur í gamlabænum úti á spáni og verkið ofan og neðan á kjólnum og hlírarnir eru handunnir... síðan er sólhattur með :)
Bloggar | 13.7.2006 | 11:11 (breytt 24.9.2006 kl. 01:24) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Bloggar | 10.7.2006 | 19:45 (breytt 24.9.2006 kl. 01:25) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Spurning mánaðarins:
Tenglar
Framtíðar leiðtogar
- Litli kúturinn minn
- Gunnar Örn
- Brynja Koldís
- Kristófer Máni
- Sara Kristbjörg
- Emilía Dís
- Elísabet Lára
- Stefán Breki
- Þórhildur Lísa
- Tristan Máni
- Nökkvi Freyr
- Hrafntinna Alba
- Viktor Máni
- Alexandra Nótt
Fólkið
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar